Episodes
Ingvar Smári Birgisson, lögmaður, setur fram áleitnar spurningar um núgildandi regluverk peningaþvættisvarna hér á landi. Við lítum einnig á hið ótrúlega magn illa fengins fés sem flæðir um fjármálakerfi heimsins, þann mannlega skaða sem hlýst af peningaþvætti og stofnun nýrrar peningaþvættisskrifstofu Evrópsambandsins.  Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 03/01/24
Published 03/01/24
Katrín Ýr Árnadóttir, lögreglufulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra, fer yfir nýútgefið áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.   Við lítum einnig á skýrslu FATF um misnotkun í tengslum við kaup og sölu á ríkisborgararétti og umfangsmikla aðgerð Europol sem leiddi til handtöku meira en eitt þúsund burðardýra í peningaþvætti. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 01/19/24
Í þessu fyrsta fréttahorni Hvítþvottar förum við yfir milljarðasekt Binance og fall rafmyntakóngsins Sam Bankman-Fried með Kjartani Ragnars, regluverði Myntkaupa.   Auk þess  veltum við upp þeirri spurningu hvort barátta fjármálafyrirtækja snúi fremur að því að verjast eftirlitsaðilum heldur en glæpamönnum. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 12/07/23
Guðmundur Kristjánsson, stofnandi og forstjóri Lucinity, segir frá mikilvægi tæknilausna og gervigreindar í baráttunni gegn peningaþvætti.  Guðmundur líkir þeirri byltingu sem er að eiga sér stað í gervigreind við tilkomu rafmagnsins og segist vera hræddari við það hvernig fólk nýtir tæknina heldur en tæknina sjálfa.  Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 05/01/23
Guðmundur Halldórsson, lögreglufulltrúi hjá Skrifstofu fjármálagreininga lögreglu, segir frá því hvers vegna tilteknum aðilum er skylt að tilkynna um grunsamleg viðskipti, hvað verður um slíkar tilkynningar og hvort aukinn fjöldi tilkynninga sé af hinu góða.    Guðmundur fer einnig yfir það hvað felst í góðri tilkynningu, mikilvægi þess að tilkynningarskyldir aðilar sinni rannsóknarskyldu sinni og hvernig mæla má árangur í baráttunni gegn peningaþvætti. Viðtalið var tekið upp undir lok...
Published 03/07/23
Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir frá ólíkum tegundum fjársvika, allt frá ástarsvikum til fjárfestasvika, hvernig þau fara fram hér á landi og hvernig má varast þau.  Brynja ræðir einnig um hlutverk fjármálafyrirtækja í baráttunni gegn peningaþvætti, hvernig peningaþvætti og varnir gegn því hafa þróast á síðustu árum og hvað felst í áhættumiðaðri nálgun.  Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka...
Published 01/27/23
Ray Blake, podcaster, author and financial crime expert from The Dark Money Files discusses the state of anti-money laundering in the UK, the Natwest case and the difference between financial crime risk and financial crime compliance risk. This show is sponsored by Rapyd. Rapyd simplifies payments so you can focus on building your business.
Published 01/20/23
Blaðamaðurinn Helgi Seljan ræðir um vernd uppljóstrara, Panamaskjölin, tengsl siðferðis og laga og meintar mútugreiðslur Samherja. Helgi segir einnig frá áreitni í garð blaðamanna, falli þýsku greiðslumiðlunarinnar Wirecard og heimildum blaðamanna til þess að taka á móti gögnum sem eru fengin með ólögmætum hætti. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 12/09/22
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, segir frá því hvernig peningaþvætti fer fram hér á landi, rannsókn lögreglu á Encrochat-málinu og tíma sínum hjá Europol. Grímur greinir einnig frá efasemdum sínum um hvort heimildir lögreglu í baráttunni gegn peningaþvætti séu fullnægjandi. Í þættinum kemur fram að áætlað sé að um 64 milljarðar íslenskra króna séu þvættaðir hérlendis á ári hverju. Þessar upplýsingar koma úr greiningu breska öryggisfyrirtækisins Credas, byggðri á gögnum OECD, frá því fyrr...
Published 12/02/22
Regluvörður Myntkaupa ræðir um fall einnar stærstu rafmyntakauphallar heims, hvernig peningaþvætti fer fram með rafmyntum og hvers vegna hann telur rafmyntir ekki áhættusamari en aðra greiðslumiðla þegar kemur að peningaþvætti. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Published 11/25/22