Episodes
Published 10/15/21
Eftir langa pásu komum við strákarnir ferskir inní stúdíó að ræða um barnaefni fortíðar og nútíðar, hvað foreldrar okkar horfðu á í sjónvarpinu á línulegri dagskrá, hvað við horfðum mikið á Cartoon Network sem börn og hvað börnin okkar eru að glápa á í dag með nútíma tækni. Þáttur þar sem flestir ættu að tengja við barnæskuna eða nútímann og vonandi fá smá nostalgíu í leiðinni.
Published 10/15/21
Þessi þáttur er með örlítið öðruvísi sniði þar sem Gunnar Bersi var í Svíþjóð þá fékk Alli pabba sinn í spjall til að heyra sína eigin fæðingarsögu í fyrsta skipti.
Published 09/10/21
Hjálmar Örn eða Hjammi eins og hann er oft kallaður er kunnugur flestum landsmönnum, hann hefur slegið í gegn undanfarin ár á samfélagsmiðlum og sem skemmtikraftur. Hann fer vel yfir helstu stundirnar í uppeldi og fæðingu barnanna sinna.
Published 09/03/21
Loksins mættir aftur eftir langt og gott sumarfrí ! Strákarnir ræða það hvernig er að komast aftur í rútínu eftir sumarfrí ásamt því að glænýr dagskráliður lítur dagsins ljós ! Pabbabrandarahornið !
Published 08/27/21
Hvað á að gera með börnunum í sumarfríinu ? Leitið ekki lengra, Pabbaorlof er með svarið !
Published 07/17/21
Hverjir eru heimsins bestu pabbar ?!  Gunnar og Alli fóru í smá rannsóknarvinnu og skiptust á sögum um erlenda pabba sem hafa sýnt mikla hetjudáð og verið til fyrirmyndar fyrir börnin sín.
Published 07/02/21
Gunnar Helgason þarf vart að kynna fyrir þjóðinni en hann er goðsögn í útgáfu barnefnis hér á landi. Hann mætti léttur í spjall til strákanna þar sem farið var yfir feril hans sem leikari, leikstjóri, handritshöfundur, barnabókahöfundur og faðir.
Published 06/25/21
Hverjir eru helstu erfiðleikarnir í uppeldinu ? Eru það svefnvenjurnar ? Er það matartíminn ? Eða hreinlega að halda geðheilsu nógu lengi til að sjá börnin útskrifast úr grunnskóla ? Strákarnir fóru yfir þetta allt saman og miklu meira í þessum þætti af Pabbaorlof.
Published 06/16/21
! Átt þú barn sem á tvö heimili, eða hreinlega þekkir einhvern sem á barn sem á tvö heimili ? Þá er þetta þátturinn fyrir þig ! Ragnheiður Lára er félagsráðgjafi og sérfræðingur í málefnum barna og rekur sína eigin ráðgjafastofu sem heitir Tvö Heimili. Í viðtalinu fer hún ýtarlega yfir hvernig best er að takast á við erfiðar aðstæður sem geta skapast þegar foreldrar fara í sundur eða tvinna saman tvær fjölskyldur.
Published 05/28/21
Gunnar Dan Wiium bauð sér í heimsókn til strákana að ræða ættleiðingaferlið hjá dóttur sinni.
Published 05/21/21
Kristófer Skúli mætti galvaskur í gott spjall til strákana. Hann sagði frá miklum erfiðleikum í fæðingarferlinu sem bæði hann og konan hans Jana hafa heldur betur þurft að takast á við. Einnig snertu þeir aðeins á því hvernig hann gerðist stuðningsforeldri og þeirri ábyrgð sem það hlutverk fylgir.
Published 05/07/21
Ísak Hilmarsson kíkti á strákana og ræddi bókina sína Fæðingarsögur feðra ásamt sínum eigin fæðingarsögum.
Published 04/30/21
Í þessum þætti fara strákarnir yfir nafnavalið á börnum og ferlið sem fylgir því. Einnig hentu þeir í smá Q&A inná Pabbatips og spurðu aðra pabba um þeirra ferli þegar kemur að því að finna rétta nafnið. 
Published 04/26/21
Þorleifur og Andrea kítku á strákana og ræddu fæðingar, uppeldi og Kviknar hreyfinguna.
Published 04/14/21
Ómar Freyr Sævarsson mætti til strákanna og opnaði sig uppá gátt með allt sem hann hefur þurft að glíma við sem faðir. 
Published 04/02/21
Í þessum þætti fara Alli og Gunnar yfir sínar fæðingarsögur. Til skiptis segja þeir frá öllu því sem þeir gengu í gegnum á meðgöngu og á fæðingarstofunni.  Hefur þú góða fæðingarsögu að geyma ? Ekki hika við að senda hana á okkur, við erum á Instagram, Facebook og email [email protected].
Published 03/24/21
Í fyrsta þætti Pabbaorlofs fáið þið að kynnast pabbalífi Alla og Gunnars, hvað þeir eiga marga gríslinga, hvernig þeir kynntust, afhverju þeir störtuðu þessu podcasti og allt það helsta sem gengur á í þeirra lífi.
Published 03/18/21