Episodes
Bjartmar Leósson sem er betur þekktur sem hjólahvíslarinn er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það er von. Hann er hvorki með fíknisjúkdóm né aðstandandi en hefur á sinn einstaka hátt nálgast okkar jaðarsettasta fólk á jafningjagrundvelli í gegnum samtöl í stað þess að finna sökudólga og vilja refsa þeim fyrir að taka reiðhjól og annað slíkt ófrjálsri hendi. Bjartmar fór að taka eftir mikilli umferð stolinna hjóla í miðbænum fyrir töluvert löngu síðan og talar hann um að það séu oftar en ekki...
Published 08/15/21
Viðmælandi þáttarins er enginn annar en Gunnar Reykfjörð, hann segir okkur frá magnaðri lífsreynslu sinni. Allt frá uppeldi yfir í hvernig neyslan þróaðist. Hann segir okkur frá atburðum í Bronx og New Jersey þar sem hann komst á kant við lögin. Þátturinn gæti valdið fíkn þannig við vörum við hlustun.  Ef ykkur líkar þátturinn endilega deilið og segið frá. 
Published 08/09/21
Viðmælandi þáttarins er enginn annar en Gunnar Reykfjörð, hann segir okkur frá magnaðri lífsreynslu sinni. Allt frá uppeldi yfir í hvernig neyslan þróaðist. Hann segir okkur frá atburðum í Bronx og New Jersey þar sem hann komst á kant við lögin. Þátturinn gæti valdið fíkn þannig við vörum við hlustun.  Ef ykkur líkar þátturinn endilega deilið og segið frá. 
Published 08/08/21
Viðmælandi þáttarins er engin önnur en Saga Nazari sem hefur verið edrú í tæp 4 ár. Hún segir okkur frá lífinu sínu sem barn. Hún talar opinskátt um ofbeldi sem hún bæði verður vitni að og verður fyrir. Hún segir okkur frá áföllunum, neyslunni og hvað varð til þess að hún varð edrú. Hún segir okkur líka frá því hvað hún er að gera í dag! Munið að deila þáttinum ef ykkur líkar hann 🥰
Published 08/02/21
Við höfum talað við móður hans og bróðir hans. Loksins tölum við Alexander! Hann segir okkur frá lífshlaupi sínu og hvernig þróun fíknarinnar átti sér stað. Hann talar um áföllinn í æsku og sorginni sem fylgdi að missa bróður sinn. Hann hefur verið edrú í 4.5 mánuð við upptökur á þættinum og segist hann hafa lært helling á þessum tíma.  Ef þér líkar þátturinn láttu þá sem flesta vita af honum ❤️
Published 07/25/21
VIðmælandi þáttarins er Baldur Einarsson sem hefur verið edrú í 14 ár. Hann segir okkur frá lífi sínu og það er vægast sagt ótrúlegt líf. Hann meðal annars talar um það að þegar hann var 10 ára hefði hann upplifað flest allt ofbeldi sem til er í bókinni og lýsir hvernig vanlíðan hans birtist í framkomu og hvernig neyslan þróaðist. Þátturinn er pakkaður af ótrúlegum lífsreynslum Baldurs sem inniheldur meðal annars dópinnflutning, ofbeldi, morð og margt fleira.
Published 07/18/21
Í þáttinn kom hinn hugrakki Óðinn Örn, en hann deilir reynslu sinni af því að vera bróðir einstaklings sem hefur glímt við fíknisjúkdóm. Hann segir okkur hreinskilið frá sínum tilfinningum um hvernig það er að upplifa fjölskylduna þegar bróðirinn fellur ítrekað og móðirin er í meðvirkni að reyna að bjarga honum og að eiga föður sem vinnur mikið. Hann segist hafa fundið sig í ræktinni og hafi oft upplifað sig einn. Hann kom í þáttinn því hann vildi koma því á framfæri að fólk þyrfti ekki að...
Published 07/11/21
Ung móðir sem er langt gengin með sitt þriðja barn kom til okkar í hlaðvarp Það er von. Hún er aðstandandi, alin upp við mikinn alkahólisma og einnig í bata frá fíknisjúkdómi sjálf og hefur verið í rúmlega þrjú ár. Þessi unga kona er nafnlaus til þess að vernda elsta barnið sitt, sjö ára dreng.
Published 07/04/21
Viðmælandi þáttarins er Hlíf Ásgeirsdóttir sem er 3 barna móðir sem þrífst best í reglu og rútínu. Hún segir okkur frá því hvernig það var að alast upp sem barn alkahólista og hverskonar afleiðingar það hefur haft fyrir sig. Við tölum líka um hversu erfitt það getur verið að setja alkahólistum mörk. 
Published 06/28/21
Viðmælandi þáttarins er engin önnur en fíkniráðgjafinn Harpa Diego. Sagan hennar er hreint út mögnuð og það er sannkallað kraftaverk að hún sé lifandi. Hún segir okkur frá lífi sínu, raunum og sigrum. Við vekjum athygli á því að þetta er ekki þáttur fyrir viðkvæma! 
Published 06/21/21
Klara Lind er 19 ára stelpa sem ólst upp við ótrúlega erfiðar aðstæður þar sem báðir foreldrar hennar voru veikir af fíknisjúkdóm. Hún segir okkur frá lífsreynslu sinni. Hún er segir okkur frá því þegar hún var sett í fóstur þegar hún var í 8 bekk, hún talar um að kerfið hafi brugðist henni og hún sitji uppi með að þurfa að vinna úr erfiðum áföllum. Í dag er hún í kokkanámi og stefnir langt í lífinu, það skipti hana miklu máli að hafa eitthvað að stefna að í lífinu. Ef þér líkar þátturinn...
Published 06/14/21
Kara var eitt sinn grjótharður pönkari sem sótti athygli sína með því að láta illa en þóttist svo ekki vilja athyglina þegar hún fékk hana. Sagan hennar leiðir okkur á hlemm og í vafasaman félagskap sem varð "la famelia". Hún talar um reiðina sem fylgdi henni eftir áföll í neyslunni og hvernig boxið ásamt kokkanámi hafi bjargað henni. Í dag er hún búin að vinna til verðlauna í boxinu og á hún nokkrar medalíur frá ólympíuleikum og heimsmeistaramóti með kokkalandsliðinu. Hún segir okkur frá...
Published 06/07/21
Gunnar W. smiðakennari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið segir okkur frá magnaðri vegferð sinni. Hann segir okkur frá þrígreiningu sjúkdómsins andlega meinið, huglæga þráhyggjan og líkamlega ofnæmið. Hann lýsir tengingu sinni við hugbreytandi efni og hvernig sú tenging þróaðist og varð til algjörar uppgjafar. Hann segir okkur frá sjálfum sér með kómískum hætti þegar hann fór sérleiðir og hvert það skilaði honum. Að lokum segir hann okkur frá vitundarsambandi sínu við æðri mátt/guð...
Published 06/02/21
Viðmælandi þáttarinns er enginn annar en Biggi lögga. Í þættinum ræðum við viðmót lögreglunnar gagnvart fólki með fíknivanda, hversu stór partur af starfi lögreglu fer í að takast á við veikt fólk. Við tölum um úrræðaleysið sem lögreglan glímir við úrlausn mála þar sem veikt fólk þarf sýnilega aðstoð og hvernig kerfið virðist bregðast fólki. Við tölum um afglæpavæðingu sem og allskonar forvarnir. Ef ykkur líkar þátturinn endilega deilið honum með fólki ❤️ 
Published 05/26/21
Áslaug Júlíusdóttir er viðmælandi þáttarins, hún er 28 ára einstæð móðir, hún segir okkur frá ótrúlegu lífsreynslu sinni sem bæði aðstandandi og síðar meir sem alkahólisti. Lífsreynsla hennar spannar frá því að reyna að semja um skuldir bróður síns yfir í að veita fylgdarþjónustu í Bandaríkjunum, hún vill meina að það sé ekki til hamingjusöm hóra. 
Published 05/19/21
Hafþór Orri aka. Blaffi segir okkur frá lífinu sínu, hvernig hann átti ekki séns í alkahólismann, hann segir okkur frá uppeldinu og hvernig hann viðsnúningurinn varð í hans lífi. Hann segir okkur frá erfiðu tilfinningum að missa nákomna og hvernig hann hefur lært að fyrirgefa og sleppa takinu á gremju! Spjallið er vægast sagt skemmtilegt og mælum við með að deila því með sem flestum! 
Published 05/11/21
Í podcast þættinum segir hún Guðrún okkur frá erfiðari æsku sinni og hvernig það var að alast upp sem barn alkahólista. Hún segir okkur frá því hvernig lífsreynsla hennar hefur aukið getu hennar til að setja sig í spor ungmenna sem eru farin að sýna áhættuhegðun. Hún er sérfræðingur í málefnum ungmenna og segir okkur frá þeirri þróun sem hún hefur orðið var við! Endilega ef þér líkar þátturinn ekki gleyma að deila honum og setja like á hann! 
Published 05/04/21
Í þáttinn kom til okkar hún Inda Björk sem segir okkur frá því hvernig það er að vera margfaldur aðstandandi og lýsir hvernig meðvirkni hefur heltekið hana á köflum. Inda er ótrúlega hugrökk í tjáningu sinni og segir okkur frá erfiðum tilfinningum sem hún upplifði á meðan sonur hennar þjáðist að völdum fíknisjúkdóms. 
Published 04/29/21
Birgir segir okkur frá lífshlaupi sínu. Hann talar um að alveg frá upphafi hafi hann verið til vandræða. Hann segir okkur frá djamminu og ítrekuðum meðferðum, hann talar um hlutina af miklum heiðarleika og segir okkur frá uppbyggingunni og sjálfsvinnunni sem hann hefur verið að vinna síðan hann varð edrú! Hann opnar sig um að hafa leitað til Bjarkahlíðar og síðar Drekaslóðar og segir að það eigi ekki að vera tabú að menn/strákar lendi í líka í áföllum. Munið að like'a og deila þættinum ef...
Published 04/23/21
Í þættinum ræða Hlynur og Tinna um Only-Fans. Only-Fans er eldfimt umræðuefni og mikið rætt þessa dagana. Við ákváðum að ræða málin út frá öðrum sjónarhornum en hafa verið tekin hingað til.
Published 04/16/21
Heiðrún segir okkur frá lífsreynslu sinni og hvernig hún upplifir sig hafa leitað snemma í að fixa sig með einhverjum hætti, mat, tölvuleikir, klám, íþróttir og svo loks hugbreytandi efni. Hún segir okkur hvernig þetta var og hvað gerðist og hvernig lífið er í dag.
Published 04/14/21
Viðmælandi þáttarins er Svala Jóhannesdóttir sérfræðingur í skaðaminnkun. Svala hefur starfað með heimilislausu fólki í Reykjavík og einstaklingum sem glíma við þungan vímuefnavanda í 14 ár. Hún hefur m.a. stýrt tveimur skaðaminnkunarúrræðum, Frú Ragnheiði á höfuðborgarsvæðinu og Konukoti athvarfi fyrir heimilislausar konur. Svala hefur heimsótt fjölmörg skaðaminnkandi úrræði erlendis og innleitt skaðaminnkandi inngrip hér á landi. Svala er menntuð í félagsfræði og fjölskyldumeðferðarfræði....
Published 04/10/21
Guðmundur segir okkur frá stöðunni í fangelsum Íslands, neyslunni, áhrif stefnubreytinga á neyslumynstur í fangelsum, allskyns ótrúlega staðreyndir um erlenda dómþola og hvernig afplánun þeirra er styttri. VIð tölum líka við Guðmund um hans persónulegu reynslu og hvaða úrræði hann myndi vilja sjá ef hann hefði völd dómsmálaráðherrra. Við spurðum hann allskonar spurningum enda ekki oft sem maður hittir menn með eins víðamikla þekkingu á fangelsismálum landsins. 
Published 04/08/21
Dagbjört Rúriks sem fer undir listamannanafninu Día spjallaði við okkur um vegferð sína í þessu lífi. Hún er sannkallaður sólargeisli og lýsti upp stúdíoið okkar með nærveru sinni. Það er mikið hlegið í þessum þætti. Njótið vel! 
Published 04/04/21
Fitness kongurinn sem hefur aldrei prófað stera segir okkur aðeins um edrúmennskuna sína, hvað hann gerði til að vera edrú og hvað hann hefur lært á leiðinni í þessu 14 ára ferðalagi sínu! 
Published 03/31/21