Episodes
Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs. settist niður með okkur að þessu sinni og ræddi reynslu af rafmagnsvögnum í þjónustu Strætó, helstu kosti og hvað framtíðin ber í skauti sér. Vissirðu t.d. að það er um 90% ódýrara að keyra rafmagnsvagna og viðhaldskostnaðurinn er 50% lægri?
Published 09/03/22
Published 09/03/22
Í þessum fyrsta þætti Rafbílahlaðvarpsins eftir langt hlé kom Guðjón Hugberg Björnsson í heimsókn. Við ræddum m.a. orkuþörf rafbíla og þróun og framtíðarsýn í hleðslustöðvum 0:00 - Hvað eru hleðslustöðvar? 14:20 - Hleðsla í fjölbýlishúsum 19:15 - EVS35 ráðstefnan í hleðslumálum 30:50 - Notkun á hraðhleðslustöðvum á landinu 38:50 - Plug&Charge tæknin 49:30 - Rafbílahleðsla í ljósastaurum
Published 07/08/22
Í þessum síðasta þætti Rafbílahlaðvarpsins fyrir jólafrí kom Guðmundur Jóhann Gíslason, leigubílstjóri hjá Hreyfli í heimsókn. Við ræddum m.a. notkun rafbíla í leigubílabransanum og kosti þess að nota rafbíl í rekstri. 0:00 - Upphaf rafbílavæðingar leigubílaflotans 5:00 - Algengustu spurningar fólks 10:00 - Aðgengi að hleðslu við Keflavíkurflugvöll 16:50 - Kostir við að nota rafbíl sem leigubíl
Published 12/06/21
Sæþór Ásgeirsson, véla- og orkuverkfræðingur hjá IceWind. Við ræddum framhaldslíf rafhlaðna úr rafbílum og nýtingu þeirra við orkuframleiðslu heimila. 0:00 - Upphaf IceWind og verkefni 7:50 - Mismunandi endingartími rafhlaðna 14:00 - Endurnýting rafhlaðna 20:00 - Breytingar á reglum um raforkuframleiðslu heimila 28:50 - Vindmyllur á Íslandi, litlar og stórar 32:30 - Elton the lonely wind turbine https://youtu.be/utEFhBgEAk0 37:30 - Framtíðarhorfur í rafbílamálum
Published 11/29/21
Hjalti Þór Guðmundsson, forsöðumaður ökutækjatjóna hjá Sjóvá mætti í heimsókn. Við ræddum m.a. tryggingarmál rafbíla og framtíðarhorfur í þeim m.t.t. sjálfkeyrandi ökutækja. 0:00 - Þróunin á markaðnum og breytingar á skilmálum kaskótrygginga 12:00 - Undirvagnstryggingar á rafhlöðum 35:00 - Hleðslustöðvar og heimilistryggingar 41:50 - Meiri umræður um tryggingar sjálfkeyrandi bíla 49:40 - Endurnýting rafhlaðna
Published 11/22/21
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hlutverk Samorku og framtíðarsýn. 1:30 - Er nóg til af rafmagni fyrir rafbílavæðinguna? 15:20 - niðurfelling á gjöldum af rafbílum 21:10 - Framtíðaruppbygging raforkukerfisins 27:20 - Könnun á hleðsluhegðun fólks
Published 11/15/21
Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hleðsluinnviði á dreifisvæði Norðurorku. 0:00 - Orkunotkun á veitusvæði Norðurorku og áhrif rafbíla á hana 16:00 - Hleðsluhegðun 19:30 - Floskuhálsarnir í kerfinu 23:40 - Önnur púsl í umhverfisvænni framtíð 25:40 - Þarf að virkja meira? 29:30 - Smávirkjanir heimila 37:20 - Biðtími á hraðhleðslum á Akureyri 38:30 - Tvöfalda rafkerfið á Akureyri
Published 11/08/21
Tinna Andrésdóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, kíkti til okkar og fór yfir hvaða álitamál eru að rata á þeirra borð útaf hleðsluinnviðum. Við fórum einnig yfir breytingu á fjöleignahúsalögunum og hugsanlegar framtíðarhorfur. 0:00 - Aðkoma Húseigandafélagsins að rafbílamálum 11:00 - Hófleg mánaðarleg þóknun húsfélags 17:50 - Þjónusta Húseigendafélagsins og framtíðarhorfur
Published 11/01/21
Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri mætti til okkar og ræddi m.a. hlutverk Orkustofnunar, framtíðaráætlanir og hvernig þær hafa breyst. 1:00 - Hlutverk Orkustofnunar 7:30 - Umræða um orkusjóð og uppbyggingu innviða á landsbyggðinni 14:30 - Viðhorf stjórnmálaflokkanna: https://rafbilasamband.is/kosningar-2021/ 20:00 - Hvort kemur á undan, hraðhleðslustöðvar á landsbyggðinni eða rafbílavæðing bílaleiguflotans? 24:20 - Upprunaábyrgðir raforku 26:00 - Þarf að virkja meira? 41:00 -...
Published 10/25/21
Við fengum Jóhannes Jóhannesson hjá Bílgreinasambandinu til að ræða breytingar í bifvélavirkjun, hlutverk Bílgreinasambandsins og framtíðarhorfur í rafbílamálum á Íslandi. 0:00 - aðkoma Bílgreinasambandsins að rafbílavæðingunni 8:30 - Eru rafbílar smíðaðir öðruvísi? 15:30 - Áskoranir sem frameliðendur rafbíla standa frammi fyrir 23:00 - Niðurfelling gjalda 31:00 - Rafbílavæðing stærri ökutækja 42:30 - Lokaorð
Published 10/18/21
Við fengum Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB og Björn Kristjánsson, tækniráðgjafa hjá FÍB til að ræða hlutverk FÍB og framtíðarhorfur í rafbílamálum á Íslandi. 0:00 - Hlutverk FÍB 3:30 - Algengustu spurningar frá verðandi rafbílaeigendum 11:50 - Ókostir við tvinbíla, umtal um eldsneytisvélina sjálfa 14:30 - Sérstakar áhyggjur af rafbílum? 16:30 - Niðurfelling á virðisaukaskatti og upptaka vegtolla 23:20 - Framtíðin?
Published 10/11/21
Við fengum Bjarna Ingimarsson, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliðinu á Höfuðborgarsvæðinu í heimsókn og ræddum eldhættu í rafbílum, slökkviaðferðir og framtíðarsýn í þeim efnum. 0:00 - Viðbrögð slökkviliðsins við komu rafbíla 11.30 - Aðgerðir framleiðenda og undurbúningur viðbragðsaðila 16:30 - Lækkandi slysatíðni með sjálfkeyrandi bílum 22:30 - Nýjungar í slökkvistarfi og nauðsyn þess að passa upp á brunavarnir innanhús
Published 10/04/21
Við fengum Gný Guðmundsson, yfirmann greininga og áætlana í raforkukerfinu hjá Landsnet í heimsókn. Ræddum áskoranir sem aukin eftirspurn eftir rafbílum hefur á flutningskerfi rafmagns. 0:00 - Hlutverk Landsnets og áskoranir vegna rafbílavæðingar 9:00 - Notkun rafmagns á landinu 15:00 - Afhending rafmagns á landsbyggðinni 22:40 - Áskoranir í rafbílavæðingu bílaleiguflotans 31:00 - Rafvæðing hafna og í flugi 36:00 - Langtímaáætlun Landsnets 39:00 - Framleiðsla raforku með öðrum leiðum...
Published 09/27/21
Við fengum Brynjar Elefsen Óskarsson, framkvæmdastjóra sölusviðs hjá BL í heimsókn. Ræddum aukna eftirspurn eftir rafbílum og hvernig framleiðendur eru að takast á við hana. 0:00 - byrjun rafbílavæðingar á Íslandi 9:20 - Viðhald og þjónusta 14:10 - Algengustu spurningar frá nýjum rafbílaeigendum 24:00 - Skortur á rafbílum 25:40 - Breyttar áherslur í bílainnkaupum 28:40 - Framtíðarhorfur 36:20 - Bílaleiguflotinn 40:25 - Uppbygging innviða á landsbyggðinni 47:10 - Lokaumræða
Published 09/21/21
Í öðrum þætti Rafbílahlaðvarpsins fáum við til okkar Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóra kerfisstýringar hjá RARIK. Við fórum yfir þær áskoranir og þá framtíðarsýn sem RARIK hefur þegar kemur að innviðum fyrir hleðslu rafbíla. Við byrjuðum á að ræða hlutverk RARIK og hvort það sé til nóg rafmagn í landinu. Kaflar þáttarins: 26:20 - Breyttar framtíðaráætlanir 29:10 - Áskoranir í frístundabyggðum og á tjaldstæðum 34:55 - Bílaleiguflotinn og uppsetning hraðhleðslustöðva á...
Published 09/15/21
Í þessum fyrsta þætti Rafbílahlaðvarpsins fáum við til okkar Hafþór Hilmarsson O'Connor til að ræða allt frá upphafi rafbílamenningar á Íslandi, hleðsluinnivði og yfir í mýtur og algengar spurningar verðandi rafbílaeigenda. Þegar Hafþór ætlaði að eignast sinn fyrsta rafbíl komst hann að því að það var lítið um svör hjá söluaðilum hér á landi, svo hann ákvað að miðla sinni reynslu og þeirri þekkingu sem hann aflaði sér. Haffi, eins og hann er kallaður, heldur úti YouTube rás þar sem hægt að...
Published 09/02/21