Episodes
Eftir langa bið er komið aftur að pabba í spjall! Arnar Long fimm barna faðir og maður Hönnu Bjarkar kom til okkar í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar ræddi við okkur um krefjandi æsku, foreldrahlutverkið og daglegt líf með 5 börn undir 4. ára! Þátturinn er í samstarfið við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Published 05/16/24
Þáttur vikunnar með einni “miðaldra” þriggja barna móður úr Hlíðunum eins og Ragga grínast sjálf með. Ragga er með PCOS og fræðir okkur um það ásamt því að fara yfir sögu sína og barneignarferlið en hún á þrjú börn undir þriggja ára. Ragga er lífsglöð og hæfileikarrík en hún hefur meðal annars túrað sem trompetleikari með Of Monsters and Men. Þátturinn er í samstarfið við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði:...
Published 05/09/24
Published 05/09/24
Sölku Sól Eyfeld þarf nú vart að kynna en hún er tveggja barna móðir, söng-, leik- og útvarpskona svo fátt eitt sé nefnt. Salka fer með okkur í gegnum sögu sína og Arnars þar sem þau gengu í gegnum ófrjósemi og þær miklu tilfinningar sem það hefur í för með sér ásamt því að slá á léttu nóturnar eins og henni einni er lagið. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Published 05/02/24
Karin Kristjana Hindborg, strákamamma og eiginkona kom til okkar í hjartnæmt spjall um lífið, börnin, barnsmissi *TW* og hvernig það er að stofna og reka fyrirtæki. Karin er förðunarfræðingur, stofnandi og eigandi NOLA, með BA í sænsku, uppeldis- og menntunarfræði. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Published 04/25/24
Erna Hrund er þriggja barna móðir, förðunarfræðingur & vörumerkjastjóri hjá Danól. Erna og Jonni eiga saman hana Lottu en Erna Hrund á þá Tinna og Tuma úr fyrra sambandi. Erna er opin, einlæg og skemmtileg. Þessi þáttur fer með ykkur í gegnum allan tilfinningaskalann en Erna sagði okkur m.a. frá meðgöngunum, fæðingunum, fæðingarþunglyndi, skilnaðinum og hvernig það er að tvinna saman fjölskyldu og atvinnu. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is &...
Published 04/18/24
Létt og ljúft spjall um móðurhlutverkið við Kötlu Hreiðars. Katla á tvö börn með manninum sínum Hauki, hann á einnig tvö börn fyrir og gengur hún með sitt þriðja barn. Það er því líf og fjör! Hún deilir með okkur lífinu, flóknum áskorunum, ásamt hlátri og léttleika. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is & Änglamark Maikai.is Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannaðar
Published 04/11/24
Gestur vikunnar hjá okkur er nýbökuð tvíburamamma. Malen á 2. mánaða tvíbura og 2. ára strák með eiginmanni sínum Degi. Við ræddum tilfinningarnar varðandi það að eiga von á tvíburum, meðgönguna, fæðinguna, fyrstu mánuðina og hvernig það er að púsla saman lífinu með þrjú lítil börn. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannaðar
Published 04/04/24
Létt, ljúft og skemmtilegt spjall við filterslausu mömmuna Vilmu. Vilma er tveggja barna móðir sem er með ansi marga bolta á lofti en hún er eigandi Vilma Home, verslunarstjóri og deilir lífi sínu með instagram fylgjendum sínum. Svo skemmtilegt hvað hún fer kát og afslöppuð í gegnum lífið. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 03/28/24
Við fengum magnaðan gest til okkar þessa vikuna hana Angelien Schalk, en hún er 5 barna móðir sem gengið hefur í gegnum ýmsar áskoranir í lífinu. Hún fer með okkur í gegnum lífið með börnin, meðgöngu eineggja tvíbura og kulnun. Þetta er einn af þessum þáttum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 03/21/24
Hannah Davíðsdóttir kom í ótrúlega skemmtilegt spjall um allt milli himins og jarðar. Hún er tveggja barna móðir, eiginkona, nemandi í þroskaþjálfafræði og einn eigenda Ægir Gym, en þau fjölskyldan fluttu einmitt til Akranes í fyrra og opnuðu líkamsræktarstöð. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 03/14/24
Við fengum til okkar góðan gest þessa vikuna. Hafdís er hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og svefnráðgjafi. Hafdís á fjögur börn og þar af eitt sett af tvíburastelpum. Hafdís deildi með okkur lífinu með fjögur börn og góðum ráðum varðandi svefn. Hún heldur úti Instagram síðunni Sofa Borða Elska. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 03/07/24
María Lena og Hannes komu til okkar í virkilega skemmtilegt spjall. Þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö börn, en fyrirtækið M fitness er þriðja barnið þeirra. Alveg frá því að þau byrjuðu saman hefur lífið mikið snúist um fyrirtækið í bland við fjölskyldulífið. Þau vinna tvö saman alla daga í fyrirtækinu og eru að byggja sér framtíðarheimili. Það er óhætt að segja að það sé mjög mikið um að snúast þessa dagana þar sem þau eru einnig að kaupa annað fyrirtæki. Þau elska að hafa nóg að...
Published 02/29/24
Eyrún Rakel kom til okkar í kósý spjall, en hún er tveggja barna móðir og starfar sem talmeinafræðingur. Við ræddum móðurhlutverkið ásamt frábærum ráðum varðandi málþroska. Hún heldur einnig úti instagram síðunni Töfratal. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 02/22/24
Óvænt þungun og það af þríburum er saga Hildar sem eignaðist þríbura stráka árið 2013. Hildur ræðir um meðgönguna, fyrstu dagana og hvernig lífið með þríbura er ásamt því að fara með okkur á persónulegu nóturnar. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 02/15/24
Eyrún Telma kom til okkar í einlægt spjall. Eyrún og maðurinn hennar eiga eineggja tvíbura stráka en fyrstu mánuðir eftir meðgöngu voru átakanlegir og fer hún vel yfir þann tíma og líðan sína í dag í von um að geta miðlað sinni reynslu til að hjálpa öðrum. Þáttur sem enginn má láta fram hjá sér fara. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 02/08/24
Vinkonu spjall um lífið og tilveruna í dag, leikskólapláss, aðlögun og hver er líklegust. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 02/01/24
Guðrún og Daði komu til okkar í einlægt, fræðandi og skemmtilegt spjall en þau eiga TVÖ pör af EINEGGJA tvíburum! Eldri tvíburarnir eru 18 ára og yngri 12 ára.  Lífsviðhorf þeirra er aðdáunarvert og vilja þau skila hvatningarorðum til fjölburaforeldra, erfiðu tímarnir taka enda og það koma alltaf bjartari tímar! Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Yrjaverslun.is, Mfitness.is & Wnoise.is 
Published 01/25/24
Nýr og ferskur þáttur! Rakel með nýjar fréttir, sturlaðar staðreyndir um eineggja tvíbura ásamt skemmtilegu spjalli við okkar fólk hjá Maikai, Áka og Mettu   Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Yrjaverslun.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 01/18/24
Við fengum til okkur ofurmömmuna Hönnu Björk, en hún ákvað fyrir nokkrum árum síðan að fara sjálfstæð í barneignarferil og á hún í dag 6 mánaða tvíeggja tvíbura. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Yrjaverslun.is, Mfitness.is & Wnoise.is
Published 01/11/24
Theja kom til okkar í virkilega skemmtilegt, fræðandi og einlægt spjall. Hún er tvíburamamma og starfar sem hjúkrunarfræðingur á Vökudeild. Þátturinn er í samstarfi við netto.is, maikai.is, yrjaverslun.is, wnoise.is og mfitness.is
Published 01/04/24
Þið vilduð heyra í fleiri pöbbum svo við ákváðum að negla boltanum yfir á Kristó og Hreinsa til þess að deila sinni hlið á foreldralífinu, ásamt smá sprelli og fjöri. .....vannst þú í gjafaleiknum? Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is og Wnoise.is
Published 12/28/23
Jólin eru að komaaaaa Við hentum í alvöru jólaspecial með smá sprelli & Eydís sagði okkur frá sinni fyrstu meðgöngu. Takk fyrir að vera heimsins bestu hlustendur, gleðileg jól & muna að njóta um hátíðarnar...let's go! Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is og Wnoise.is
Published 12/21/23
Ofurmömmurnar Ástrós og Margrét komu til okkar í spjall, en þær eiga eineggja þríbura stelpur. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is og Wnoise.is
Published 12/14/23
Tvíburarnir Eiður og Gústi komu til okkar í spjall um lífið og tilveruna sem tvíburar. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is og Wnoise.is
Published 12/07/23